Thursday, November 09, 2006

Jæja, þá er próftaflan komin á hreint, ég er í prófum frá 4. des - 15. des. það verður án efa nóg að gera þangað til, ég hef nóg að læra, er í ræktinni, er skátaforingi, fer í krullu, er að vinna, rek fyrirtæki... hvað segiði, á ég skilið að komast inn :p neinei, þetta hljómar mikið en ég er nú samt búin að vera alveg gríðarlega dugleg.
En annars er ekki mikið að frétta.. ég er reyndar að fara að eyða peningum á eftir, alltaf gaman af því;) það er félagasala í 66° norður, einhverjir svaka afslættir og klárlega er ég að spara helling af pening ef ég bara kaupi mér nógu mikið :)

  • það eru 7 skóladagar eftir hjá mér!
  • ég á afmæli eftir 14 daga ;)
  • prófin byrja eftir 25 daga!
  • prófin eru búin eftir 36 daga!
  • jólin koma eftir 45 daga!
  • Vúhú!

5 comments:

Una said...

Já klárlega ertu að spara með að fara þangað... eiginlega græða bara! Og því meira sem þú kaupir, því meira græðir þú!

Anonymous said...

Ohhhh, afhverju fór ég ekki í HA!!! ég er búin í prófunum 21. des

Skotta said...

Og ég kem heim eftir 36 daga!

Anonymous said...

Já sko, þessi listi hljómar langur en er nú ekki alveg réttur! Það kallast ekki að fara í krullu þegar maður liggur hrjótandi upp í sófa! Sama hvaða skilning maður reynir að leggja í orðið krulla!

Gangi þér vel í prófunum!

Anonymous said...

það hljómar mun betur að prófin séu búin eftir 36 daga heldur en að þau byrji eftir 25... get ekki beðið... og að sjálfsögðu komumst við inn :)
erum einfaldelga ekki típurnar í að vinna á kassa í bónus ;)